Ferill 468. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 747  —  468. mál.




Frumvarp til laga



um jöfnunargjald vegna alþjónustu árið 2000.

(Lagt fyrir Alþingi á 125. löggjafarþingi 1999–2000.)



1. gr.

    Til að standa straum af fjárframlögum vegna alþjónustu árið 2000 skal innheimta jöfnunargjald skv. 15. gr. laga um fjarskipti, nr. 107/1999, af gjaldskyldri veltu ársins. Gjaldið skal nema 0,18% af bókfærðri veltu eins og hún er skilgreind í 2. mgr. 15. gr. laga um fjarskipti. Heimilt er að ákveða að greitt skuli fyrir fram árið 2000 upp í væntanlega álagningu jöfnunargjalds.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Samkvæmt IV. kafla laga um fjarskipti, nr. 107/1999, (áður VIII. kafli laga um fjarskipti, nr. 143/1996) er gert ráð fyrir að hægt sé að skylda fjarskiptafyrirtæki til þess að veita svokallaða alþjónustu sem skilgreind er í 13. gr. laganna. Ef slík þjónusta sem fyrirtæki er gert að veita felur í sér meiri tilkostnað en sem nemur tekjum getur viðkomandi fyrirtæki krafist fjárframlaga sem tryggi eðlilegt endurgjald fyrir þjónustuna. Til að standa straum af þessum greiðslum skal innheimta jöfnunargjald og skal það ákveðið árlega með lögum með hliðsjón af fyrirsjáanlegri fjárþörf.
    Í samræmi við reglugerð um alþjónustu, nr. 216/1998, auglýsti Póst- og fjarskiptastofnun eftir umsóknum um fjárframlög vegna alþjónustukvaða. Ein umsókn barst um fjárframlög á árinu 2000 og var hún frá Neyðarlínunni hf. Farið var fram á 19 millj. kr. framlag vegna kostnaðar við neyðarsímsvörun sem telst vera alþjónusta og fyrirtækinu hefur verið gert skylt að veita. Með umsókninni fylgdu fullnægjandi gögn um kostnað sem umsækjandi ber af alþjónustukvöð. Póst- og fjarskiptastofnun áætlar því að greiða 19 millj. kr. úr jöfnunarsjóði á árinu.
    Lagt er til að jöfnunargjald verði ákveðið 0,18% fyrir árið 2000. Prósentutala þessi er miðuð við veltu gjaldskyldra aðila árið 1998 (u.þ.b. 11,5 milljarðar kr.) og fjárþörf sjóðsins árið 2000.
    Lagt er til að heimilað verði að innheimta fyrirframgreiðslu þar til endanleg álagning liggur fyrir svo að hefja megi greiðslu fjárframlaga sem fyrst, en augljóst er að fyrirtæki getur reynst erfitt að reka þjónustuna með tapi mánuðum saman. Jöfnunarsjóður hefur ekkert fé til ráðstöfunar í dag enda hefur jöfnunargjald ekki verið innheimt hingað til og þurfa fyrirframgreiðslur því að hefjast við fyrsta mögulegt tækifæri. Við undirbúning fjarskiptalaga var sérstök athygli fjarskiptafyrirtækja vakin á þessu ákvæði.

Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


    Umsögn um frumvarp til laga um jöfnunargjald
vegna alþjónustu árið 2000.

    Tilgangurinn með frumvarpi þessu er að setja á jöfnunargjald vegna alþjónustu. Í 15. gr. laga nr. 107/1999, um fjarskipti, er kveðið á um að jöfnunargjald skuli ákveðið árlega með lögum. Samkvæmt lögunum má skylda fjarskiptafyrirtæki til þess að veita svokallaða alþjónustu sem er skilgreind í 13. gr. laganna. Ef þjónustan felur í sér meiri tilkostnað en sem nemur tekjum getur viðkomandi fyrirtæki krafist fjárframlaga sem tryggja eðlilegt endurgjald fyrir þjónustuna. Til að standa straum af þessum greiðslum skal innheimt jöfnunargjald sem rennur til Póst- og fjarskiptastofnunar og skal það ákveðið árlega með lögum. Í frumvarpinu er lagt til að jöfnunargjaldið fyrir árið 2000 verði 0,18% af veltu fjarskiptafyrirtækja vegna almennrar þjónustu. Ef miðað er við veltu gjaldskyldra aðila á árinu 1998 sem var 11,5 milljarðar kr. ætti jöfnunargjaldið að skila u.þ.b. 20 m.kr. í ríkissjóð. Verði frumvarpið óbreytt að lögum verður ekki séð að það hafi áhrif á afkomu ríkissjóðs þar sem gert er ráð fyrir tekjum á móti gjöldum.